Menningarheimurinn - Jólalög 2/2 - a podcast by RÚV

from 2018-12-18T18:30

:: ::

Jólin koma á hverju ári, alltaf í desember. Samt er eins og jólin hefjist fyrr hjá sumum, jafnvel í september en þá eru það oftast jólalögin sem koma þeim í jólagírinn. Fleiri og fleiri bætast í jólastuðhópinn því sem nær dregur desember. Svo er eins og allt springi þann 1. desember þegar loksins má byrja að spila jólalögin í útvarpinu. Við erum öll svo ólík og hver og einn á sínar jólahefðir. Í þessum jólalagaþáttum ætlum við að reyna að svara eftirfarandi spurningum: hvað einkennir jólalög? Hvernig semur maður jólalag? Eru einhverjar reglur til um hvenær má byrja að hlusta á jólalög? Hver eru uppáhaldsjólalög fólks? Daði Freyr og Árný segja okkur frá uppáhaldsjólalögunum sínum, við heyrum allt um jólahefðirnar hér í Ríkisútvarpinu frá manninum sem óskar okkur gleðilegra jóla fyrir hönd Ríkisútvarpsins og við Jói reynum okkar besta að klára jólalagið okkar - ætli það takist? Viðmælendur: Daði Freyr og Árný Fjóla, listamenn Sigvaldi Júlíusson, þulur í Ríkisútvarpinu Danskrakkar úr Danslistaskóla JSB Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Síðari þáttur af tveimur

Further episodes of Útvarp KrakkaRÚV

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV