Agalma, Ásta og innpakkaður Sigurbogi - a podcast by RÚV

from 2021-09-21T16:05

:: ::

Í þætti dagsins fær Víðsjá Guðmund Ara Arnalds, tónlistarmann í heimsókn. En hann er einn af forsprökkum tónlistarútgáfunnar Agalma sem stofnað var árið 2019 og hefur gefið út, hvorki meira né minna en 19 plötur síðan. Útgáfan heldur svokallað Label Night í kvöld í Mengi þar sem listamennirnir Þorsteinn Eyfjörð, Szymon Keler & Ronja Jóhannsdóttir stíga á stokk. Víðsjá forvitnast líka um hvernig upplifun það sé að fara upp á innpakkaðan Sigurboga í París þegar Laufey Helgadóttir listfræðingur verður tekin tali. Snæbjörn Brynjarsson leiklistargagnrýnandi Víðsjár segir skoðun sína á leikverkinu Ástu sem nú er til sýninga í Þjóðleikhúsinu en þar er á ferðinni leiksýning byggð á ögrandi list og litríku lífshlaupi listakonunnar Ástu Sigurðardóttur. Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Guðni Tómasson

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV