Dauðadans, farsóttarhúsið, Veröld sem var og Ferðalok - a podcast by RÚV

from 2020-04-01T18:05

:: ::

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Kristínu Svövu Tómasdóttur sagnfræðing og ljóðskáld um rannsókn sem hún vinnur nú að undir yfirskriftinni Farsótt: Sýkingar, sóttir og lækningar í Þingholtsstræti 25 en þar segir hún sögu farsóttahússins og setur í samhengi við reykvíska og íslenska heilbrigðissögu. Einnig verður horfið aftur til miðalda og dans stiginn með þeim sem á endanum kemur til okkar allra, nefnilega dauðanum. Og bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er Veröld sem var, hin fræga sjálfsævisga austuríska rithöfundarins Stefans Zweigs. Hlustendur heyra í þættinum í dag í Guðmundi Andra Thorssyni rithöfundi og Alþingismanni sem las verkið ungur og hefur miklar mætur á höfundinum. Hlustendur heyra líka ljóð fyrir þjóð, Pálmi Gestsson les Ferðalok eftir Jónas Hallgrímsson fyrir einn gest í Þjóðleikhúsinu. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV