Þjóðlög, Slóð, Tófan, athygli - a podcast by RÚV

from 2021-11-09T16:05

:: ::

Magnea Þuríður Ingvarsdóttir heldur úti facebook síðunni Tófan, ljóða- og fræðasetur þar sem hún vekur athygli á ljóðum 19. aldar skáldkvenna. Víðsjá hefur undanfarið sótt Magneu heim í Breiðholtið, og rætt ólíkar skáldkonur fyrri tíma. Í þetta sinn verður rætt um Sigrúnu Fannland. Kjartan Ólafsson gef nýverið út tónverk sem nefnist ?Þjo?ðlo?g u?r framti?ð? . Verkið byggir á átta íslenskum þjo?ðlo?gum sem voru hljóðrituð og farið með i? ferðalag um tækniheima nu?ti?mans þar sem dulin og a?ður o?þekkt blæbrigði þjo?ðlaganna koma fram a? ny?sta?rlegan ha?tt. Við ræðum við Kjartan í þætti dagsins um raftónlist, algóritma og tengsl rímna og popptónlistar. Snorri Rafn Hallsson heldur áfram pistlaröð sinni um möguleika og ómöguleika tækninnar. Sókrates óttaðist að bækur myndu gera út af við minnið, mun internetið gera út af við athyglina? En við byrjum þáttinn á Seyðisfirði. Ólöf Gerður Sigfúsdóttir fór að sjá sýninguna ?Slóð? sem nú stendur yfir í Skaftfelli, þar sem myndlistarkonurnar Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal vinna verk með innblæstri af afar merkum fornleifafundi á svæðinu.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV