Náttúrusýn miðalda, Páll P. Pálsson, Murakami á hlaupum. - a podcast by RÚV

from 2020-05-26T16:05

:: ::

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Viðar Hreinsson bókmenntafræðing sem tók á dögunum við styrk úr sjóði sem ætlað er að styðja þverfaglegar rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda. Styrkinn fær Viðar til að vinna að verkefni sem nefnist Náttúrur og fornar frásagnir: Um náttúru- og umhverfissýn íslenskra miðaldasagna, en þar hyggst Viðar fjalla um umhverfi og náttúrusýn í íslenskri sagnalist frá landnámi til siðaskipta, beita nýjum straumum umhverfishugvísinda á fornar íslenskar bókmenntir í því skyni að styrkja skilning á náttúruskyni, náttúrusýn og náttúrunytjum í sögulegu samhengi. Rætt verður við Viðar í þætti dagsins. Einnig verður hugað að nýútkominni bók sem heitir Ljáðu mér vængi og hefur að geyma minningarbrot úr lífi Páls Pampichlers Pálssonar, trompetleikara, hljómsveitarstjóra og tónskálds. Rætt verður við Sigurð Yngva Snorrason einn af höfundum bókarinnar um Pál og ævi og störf hans í íslensku tónlistarlífi. Og bók vikunnar á Rás eitt að þessu sinni er Það sem ég tala um þegar ég tala um hlaup eftir japanska rithöfundinn Haruki Murakami. Bók sem er í senn ferðabók og minningabók og hverfist um fimm mánaða æfingaplan fyrir maraþonhlaupið í New York. Hlustendur heyra í þýðanda bókarinnar, Kristjáni Hrafni Guðmundssyni, í Víðsjá í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV