Nikkur, Tungl og bækur - a podcast by RÚV

from 2021-09-08T16:05

:: ::

Víðsjá 8. sept 2021 Í Víðsjá dagsins mætir íslensk-norska Storm dúóið í þáttinn en það skipa harmonikkuleikararnir Ásta Soffía Þorgeirsdóttir og Kristina Farstad Bjørdal, en þær stöllur eru að leggja upp í tónleikaferð um landið á næstu dögum. Þær Ásta og Kristina mæta auðvitað með nikkurnar sínar fallegu og taka fyrir okkur lagið. Bókmenntahátíð í Reykjavík hefst í dag og af því tilefni hugum við sérstaklega að bókum í þætti dagsins. Rithöfundurinn Mao Alheimsdóttir lítur við en hún verður hluti af pallborðsumræðunni Heima Heiman sem veltir fyrir sér merkingu hugtaksins Heima. Einnig verður hún hluti af pallborðinu Sjálfsmynd Íslendinga í bókmenntum og annað sjónarhorn. Hún ræðir þessi þemu í þætti dagsins. En á bókmenntahátíð fara einnig fram viðburðir handan dagskrár eða off-venue. Einn slíkur viðburður er útgáfa frá Tunglinu - forlagi en á Tunglkvöldi sem er í kvöld verða bækur Ástu Fanneyjar Siguðrardóttur, Gluggi - Draumskrá, og Páls Ivans frá Eiðum, Pulsur náttúrunnar (og önnur vonbrigði), til sölu og það aðeins í kvöld. Þær bækur sem ekki seljast verða brenndar. Umsjón: Guðni Tómasson og Tómas Ævar Ólafsson.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV