Sembaltónlist, sjónvarpsgláp, konur og náttúruvernd - a podcast by RÚV

from 2022-01-04T16:05

:: ::

Í dag kynnum við til leiks nýjan pistlahöfund hér í Víðsjá. Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir sagnfræðingur hefur einbeitt sér að því að horfa til baka frá sjónarhorni femínisma og skoðað meðal annars sögu kvenna sem voru á jaðri gamla bændasamfélagsins, förukonur og einsetukonur. Einnig hefur hún skrifað um kynferðisofbeldi gegn vinnukonum og um skyggnar konur sem stunduðu miðilsstörf á uppgangstíma andatrúar á Íslandi. Hér í Víðsjá á næstu vikum mun Dalrún fjalla um viðhorf íslenskra kvenna fyrr á öldum til íslenskrar náttúru. Í pistli dagsins fjallar hún um framlag tveggja fyrri alda kvenna til náttúruverndar á Íslandi og beinir sjónum að aðgerðarsinnunum Sigríði frá Brattholti og Þorbjörgu Sveinsdóttur, sem lögðu mikið í sölurnar til að vernda straumvötn og lífríki þeirra. Halldór Bjarki Arnarson spilar jöfnum höndum á sembal, orgel, píanó og horn en er þar að auki liðtækur á ýmis konar íslensk þjóðlagahljóðfæri sem liðsmaður í fjölskylduhljómsveitinni Spilmenn Ríkínís. Hann hefur einnig fengist við tónsmíðar - samið raftónlist og hljóðfæratónlist, en í dag stundar Halldór Bjarki framhaldsnám í semballeik í Sviss. Á morgun heldur hann hádegistónleika í Slanum í Kópavogi þar sem hann hyggst kanna þær andstæður sem einkenna sembaltónlist barrokktímans. VIð lítum í heimsókn til Halldórs Bjarka hér á eftir. Og við hefjum þáttinn á nýárshugleiðingum eftir sófagláp hátíðanna. Við sögu kemur sjónvarpsserían Verbúð og ameríska Netflix myndin Dont look up.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV