Starfsár Sinfó, Borgarfjarðarblómi, Huldumaður og víbrasjón - a podcast by RÚV

from 2021-06-23T16:05

:: ::

Í Víðsjá í dag verður hugað að komandi starfsári hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands þegar Árni Heimir Ingólfsson listrænn ráðgjafi sveitarinnar verður tekinn tali. Einnig verður hugað að Borgarfjarðarblóma þegar myndlistarmaðurinn Viktor Pétur Hannesson verður tekinn tali en hann vinnur myndlist sína úr borgfirskum jurtum og ferðast um á ferðavinnustofu sinni, Afleggjaranum. Dúettinn Huldumaður og víbrasjón verður líka meðal gesta Víðsjár í dag en hann er skipaður þeim Heklu Magnúsdóttur þeramínleikara og Sinda Frey Steinssonar gítarleikara. Þau fara á flakk um landið í sumar og flytja sönglög Magnúsar Blöndal Jóhannssonar tónskáld í nýstárlegum útsetningum fyrir þeramín, gítar, flautu og hljóðgervil. Hekla og Sindri eru gestir Víðsjár í dag og ræða verkefnið og tónskáldið á bak við verkin. Umsjón: Guðni Tómasson og Jóhannes Ólafsson

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV