Súðbyrðingurinn, Tanntaka, Borg bróður míns - a podcast by RÚV

from 2021-12-15T16:05

:: ::

Í gær var tilkynnt að smíði og notkun súðbyrðingsins, hins dæmigerða norræna trébáts, sem fylgt hefur Norðurlandabúum um árþúsundir, hefði eftir langa bið verið samþykkt inn á lista UNESCO óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Að þessu tilefni tekur Víðsjá hús á mönnum sem kunna til verka þegar kemur að bátasmíðum og ræðir við þá Einar Jóhann Lárusson nema og Hafliða Aðalsteinsson meistara um slíkar smíðar. VIð ræðum einnig við Þórdísi Helgadóttur skáldkonu, en hún var nýverið tilnefnd til Fjöruverðlauna fyrir sína fyrstu ljóðabók, Tanntöku. Þórdís hefur áður gefið frá sér smásagnasafnið Keisaramörgæsir, og svo er hún hluti af Svikaskáldum sem voru nýverið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir skáldsöguna Olíu. Og við heyrum dóm um nýja bók Kristínar Ómarsdóttur, Borg bróður míns.

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV