Umskiptingar, Heyrandi nær og Sjálfsævisaga Alice B. Toklas - a podcast by RÚV

from 2021-06-28T16:05

:: ::

Í Víðsjá í dag verður hugað að nýrri en samt sígildri bók. Sjálfsævisaga Alice B. Toklas kom út í íslenskri þýðingu í síðustu viku í ritröð Unu útgáfuhúss Sígild samtímaverk. Bókin er sjálfsævisaga en samt eiginlega ekki sjálfsævisaga. Víðsjá fær til sín þýðanda verksins Tinnu Björk Ómarsdóttur til að útskýra hvað er á seyði. Umskiptingar hafa verið á flestra vörum undanfarið, allt frá því að sjónvarpsþættirnir Katla voru frumsýndir á streymisveitunni Netflix. Þættirnir glíma við þetta dularfulla þjóðsagnaminni, þegar huldufólk og álfar skipta út mannabörnum fyrir sín eigin afkvæmi. Víðsjá fær til sín Kristinn Schram, þjóðfræðing, til þess að segja betur frá umskiptingum. Og Arnljótur Sigurðsson verður einnig með tónlistarhornið Heyrandi nær á sínum stað á mánudegi. Arnljótur tekur fyrir döbbskáldið Linton Kwesi Johnson, hvers rödd verkaði jafnt á stéttir, hátt og lágt. Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Tómas Ævar Ólafsson

Further episodes of Víðsjá

Further podcasts by RÚV

Website of RÚV