6. Ástartungumálin framhald eftir Gary Chapman - a podcast by Von ráðgjöf - Það er til betri leið

from 2019-07-29T23:00

:: ::

Ástartungumálin 5 eftir Gary Chapman eru frábært verkefæri til þess að vinna með ástina í hjóna-og parsambandinu.  Vandinn í parsambandinu er oft sá að tala ástartungumál sem við skiljum en skiljum svo ekkert í því að maki okkar skilur það ekki.  

Ástartunugmálin eru fimm og yfirleitt er það eitt sem lætur allt tikka fyrir mokkur. Við höfum svo oft séð að makar reyna að tala ástartungumálið sem hinn makinn skilur ekkert í.

Við það myndast vonbrigði þar sem makinn upplifir að það sem hann gerir sé ekki metið. Málið er að það er ekki að makinn meti ekki það sem er gert heldur talar hann ekki þetta tungumál. Svona eins og að reyna að tala íslensku við einhvern í þýskalandi.

Lærum hvert er ástartungumál maka okkar svo við getum sýnt maka okkar elsku eins og hann skilur.

  1. Snerting
  2. Uppörvandi ora
  3. Gjafir
  4. Gæðastundir
  5. Þjónusta

Til að panta á námskeið eða í ráðgjöf:

https://pantatima.as.me/schedule.php

Ástartunnugmál próf:

https://www.5lovelanguages.com/quizzes/

Further episodes of Von Ráðgjöf - Lausnin Hlaðvarp

Further podcasts by Von ráðgjöf - Það er til betri leið

Website of Von ráðgjöf - Það er til betri leið